systur
30.10.2007 11:27:48 / systur

Ball með Röggu

Ég fór á kjólaball í Iðnó í gærkvöldi. Heimilistónar voru að spila. Ég mætti á staðinn upp úr níu og var að klára að borða með pabba gamla, þegar það var búið var farið niður og hlustað á hana Andreu þeyta plötum fyrir okkur. þetta var einmitt hún Andrea sem að kom í Allt í drasli.

Heimilistónar byrjuðu svo að spila þegar klukkan var svona um það bil að slá hálf tólf eða 23:30, og byrjuðu á einhverju kynningarlagi sem var svona ágætt. hljómsveitina skipa Ragnhildur Gíslad, Ólavía Hrönn, Katla Margrét, Vigdís Gríms og svo einhver ein í viðbót sem að ég man ekki hvað heitir.

þegar þær voru búnar að spila í nokkurn tíma kom hlé, þær semsagt fóru og skiptu um föt og komu svo til baka prúðbúnar og fínar. í hlénu spilaði hún Andrea fyrir okkur og hélt uppi stuðinu með því að þeyta skífum fyrir okkur.

svo kom að því að þær stigu á svið aftur og þá var komið að leynigesti og dönsurum en leinigesturinn var Stefán Hilmarsson og dansararnir voru þær Elma og Edda leikkonur. 0

þegar ballið var búið var klukkan rúmlega 4 um morgun, ég fór semsagt að tala við hana Röggu og það var smellt af okkur mynd saman sem að ég mun setja hérna með þessu bloggi. Svo var bara boðið góða nótt og ætlaði að halda heim, EN ég álpaðist til að týna bílliklinum mínum og byrjaði að spurja alla þarna hvort að þau hefðu séð hann en það hafði enginn séð hann 0 en svo fannst hann þegar klukkan var að ganga hálf fimm en hann var undir einu borðinu nálagt sviðinu. Eftir að ég fann þá hélt ég heim á leið en skutlaði Ragnhildi bekkjasystyr og mömmu hennar heim í breiðholtið í þessari fljúgandi hálku sem að var ekki góð fyrir mig því að ég var á sumardekkjum 000

það er bara fyndið hvað fólk á Íslandi er ekki eins og fólk úti í útlöndum, hérna gengur forsetinn niður Laugarveginn eins og hver annar maður og fræga fólkið skemmtir sér með hinu fólkinu og hefur það bara gott.

en það voru víst að bætast nýjir bloggarar í hópinn en það eru ég og Lilja systir með sameiginlega síðu og svo hún Kristjana Hákonía sem að er að gera sína fyrstu síðu.

jæja þetta er orðið ósköp langt hjá mér þannig að ég ætla að stoppa núna og blogga meira þegar einhvað gerist 0

Takk enn og aftur fyrir frábært kvöld elsku Ragga og takk fyrir kveðjuna.

Sigurbjörg H.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 23:31:17 / systur

stúlkan er bara dugleg

jeijjjjjjjj

 

Ég náði helvítis bóklega prófinu jeijjjjjj


þá bara bíða eftir þvi að taka verklega shitt ég kann ekkert að keyra LOL

 

kv lilja


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 00:55:22 / systur

Vantar Fyrirsögn!!!!

já eins og fyrirsögnin gefur tli kynna þá veit ég ekki hvað ég á að skrifa hérna inn en það hlítur að geta spunnist einhvað úr þessu heila klabbi mínu.

ef ég má deila einhverju með ykkur þá vil ég deila þessu.

það eru 61 dagar í jólin og það gera 68 daga eftir af árinu,

það eru 238 dagar í að ég verð 20 og fleira og fleira sem ég nenni ekki að telja upp.

þangað til næst

S. H. S.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 13:57:44 / systur

hæjjj

eg er ekki búin að sofa neitt frá þvi klukkan 2 í nótt og er að drepast i maganum ......:whut::frown:
hvað var eiginlega málið í gær ég mátti ekki tjá mig þá er eg bara skömmuð og eikkað halló eg þurfti að hnerra og einn herna sagði nei ekkki hjálpa ekki hjálpa halló eg þurti að hnerra ....:(!!!!!
en nuna er eg bara lonely ein hiem aað blogga og skoða himinninnn hann er soldið flottur í dag en sammmt alllveg rosalega kallt uti e gfór ut með ruslið áðan shit það er kallt þó að það se ekkert ský a himni og lanka sólskin og logn ...;);)
og svo bara vinna í dag og læra betur undir bilprofið eg FÉLLLL reyni bara aftur....
en hey hveð í bili bæbæjjjj(K)(K)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 17:14:02 / systur

góðan daginn

Við erum hér 2 systur sem langaði að prufa að blogga smá vegis, við lofum engu um það að við verðum duglegar að blogga,

en allavega þá er fyrsta bloggið komið hérna inn

njótið vel


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg